Sitt lítið af hverju.

Halló.

Ég fór á prjónakaffi í Gömlu-Borg á þriðjudaginn var. Það var mjög gaman. Held að það hafi ca 50-60 konur verið mættar og mikið prjónað. Helga Jóna úr Nálinni var með kynningu á Kauni garni og svo var hún Ragga með kynningu á Prjóni prjón. Skemmtileg bók sem gaman er að kíkja á.

ÉG er byrjuð á Prinsateppinu (Kongeriget er það kallað). Er búin með miðjuna og er að fara í innrikantinn. Það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út. ÉG er að prjóna úr silkigarni sem heitir Silkbloom Fino er 45% morbærsilki og 55% super soft merinoull. Mjög gott að prjóna úr þessu garni.

Svo var ég að klára sokka sem ég gerði, 2 á einn hringprjón. Það var gaman að rifja upp aðferðina. Hér koma svo myndir af herlegheitunum.

DSC03990

DSC03994

Það var á föstudaginn sem mamma kom með poka handa mér. Í honum var bók! Frá nágrannakonu mömmu og pabba ( og mín þegar ég bjó heima). Hún veit að ég prjóna mikið og hún átti eina skemmtilega prjónabók í sinni hillu! Og ákvað að gefa mér hana!! ÉG átti nú varla til orð! Þetta var alveg ÆÐISLEGT. ÉG segi nú bara TAKK UNNUR FYRIR MIG. Hér koma nokkrar myndir úr bókinni.

DSC03991

DSC03992

DSC03993

Læt þetta duga í bili.

Kveðja

Berglind


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Þess vegna var svona lítið úrval af Kauni í Nálini, þegar ég komst loksins þangað. Keypti samt þrjár dokkur.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 9.2.2009 kl. 18:27

2 identicon

Já einimtt. Maður verður að vera á réttum stað og á réttum tíma!!! Svo verður hún á Selfossi núna á mánudagskvöldið! Þá verður hægt að kaupa Kauni milli 18 og 18:45!

Það er bara æðislegt að prjóna úr þessu garni!

kv

Berglind

Berglind Haf (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 19:36

3 identicon

Ég er nú ekki sú duglegasta að kvitta, en ég er dugleg að kíkja hérna inn á síðuna þína. Þú ert ekkert smá dugleg. Fæ eldmóð frá þér í prjónaskapnum, prjónaði vesti á dúlluna mína á innan við viku, sem er nú met hjá mér.

Hlakka til að sjá fleiri afurðir

kv. frá Danmörku

Anna

Anna Ingad. (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband