13.8.2008 | 13:38
Að prjóna 2 hluti á einn hringprjón!!!!
Hér er auglýsing fyrir námskeiði sem ég er að standa fyrir á Selfossi.
www.prjonakona.com kynnir Prjónanámskeið í Tryggvaskála miðvikudagskvöldið 3. og 10.
september 2008. Um er að ræða námskeið sem kennt hefur verið í Hannyrðaversluninni Nálinni við
góðar viðtökur. Kennari er Elín Einarsdóttir.
Tveir hlutir prjónaðir á einn hringprjón
Kennt verður í 2 skipti, 2 tímar í senn með viku millibili, og er prufustykkið
sokkar sem prjónaðir eru frá tánni og upp.
Í fyrri tímanum verður farið yfir hinar ýmsu aðferðir til að byrja að prjóna
tvo hluti á einn langan hringprjón, meðal annars aðferð til að byrja að prjóna
sokka eða vettlinga og byrja frá tánni/fingrunum og enda á stroffinu. Með
þessari aðferð þarf ekki að sauma neitt saman, bara fela endana.
Í seinni tímanum verður farið yfir það hvernig snúa skal hælnum auk þess
sem farið verður yfir allar spurningar og vandamál, ef einhver, sem komið
hafa upp frá fyrri tímanum. Mjög þægilegt er að nota þessa aðferð til að
prjóna sokka og vettlinga, handstúkur og jafnvel ermar - en með því að
prjóna báða hluti í einu losnarðu við það sem kallað hefur verið "seinnisokka-
syndrómið", þ.e. að seinni sokkurinn er annað hvort ekki prjónaður
eða endar nokkuð ólíkur þeim fyrri. Báðir hlutirnir eru prjónaðir eins,
umferð fyrir umferð og tilfinningin er jafnvel sú að það gangi fljótar að
prjóna því báðir hlutirnir eru tilbúnir á sama tíma.
Notast er við 80 cm eða lengri hringprjón nr. 4, sem þátttakendur komasjálfir með, eða kaupa á staðnum. Garn í prufustykkið er innifalið.
Í boði eru tvö námskeið, það fyrra kl 18:00 til 20:00 3. og 10. september og það seinna kl 20:15 til
22:15 3. og 10. september. Eins og áður hefur komið fram eru þetta tvö kvöld með viku millibili.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst: prjonakona@gmail.com og kostar námskeiðið 5.500krKveðja,
Elín E.
Ef þið lesendur góðir langar til að læra þessa tækni, endilega skrá sig.
KVEÐJA
BERGLIND
Athugasemdir
Gott framtak. Mér finnst þetta gott verð á prjónanámskeiði.
Sonja (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 15:17
Hef ekki aðgang að póstkerfinu mínu í augnablikinu. Get ég fengið símanúmer til að skrá tvær í seinni tímann 8:15?
Kv. Soffía
Soffía Valdimarsdóttir, 27.8.2008 kl. 13:23
ég er búin að baksa lengi við að reyna að læra að prjóna sokka (er skelfilegur ullasokkafíkill), en þetta heppnast svona misilla hjá mér.
mig myndi svo mikið langa að læra að prjóna frá tá og uppúr en ég bý í bænum, ekki væri séns að þú værir svo sæt í þér að senda mér uppskrift sem ég reyni að krafla mig framúr (á netfangið irisarna@internet.is)
kær kveðja og takk fyrir síðuna þína
Íris Arnardóttir (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.